top of page
Search

Djúpavogsskóli vottaður Byrjendalæsisskóli

  • Vefstjóri
  • 7 days ago
  • 1 min read

Updated: 6 days ago

Djúpavogsskóli hefur nú staðist og uppfyllir öll skilyrði til að vera viðurkenndur sem Byrjendalæsisskóli. Þess til vottunar hefur Djúpavogsskóli fengið sent nýtt merki Byrjendalæsis til að prýða heimasíðuna.

Það er frábært teymi kennara í Djúpavogsskóla sem hefur starfað og þróða gæðakennslu í Byrjendalæsi og fyrir þeim hópi hefur Jóhanna farið og leitt þróun Byrjendalæsis svo vel.

Til að stuðla að og viðhalda gæðastarfi er grundvallaratriði að framkvæma árlega sjálfsrýni og nota matslistann í þeim tilgangi. MSHA gera úttekt í Byrjendalæsiskólum þriðja til fjórða hvert ár. Þess á milli er gert ráð fyrir að skólar fylli út rafrænan lista og skrái í umbótaáætlun þau atriði sem þarf að bæta eða styrkja.

Meginmarkmið Byrjendalæsis er að börn nái góðum árangri í læsi sem allra fyrst á skólagöngu sinni. Þegar börn hefja nám í 1. bekk eru þau misjafnlega á vegi stödd. Sum þekkja stafi, önnur eru farin að lesa og svo er hópur sem þarf að læra alla stafina og hvernig á að vinna með þá. Byrjendalæsi gerir ráð fyrir því að hægt sé að kenna börnum sem hafa ólíka færni í lestri hlið við hlið og því er lögð áhersla á hópvinnu um leið og einstaklingsþörfum er mætt.

Með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi er lögð áhersla á mikilvægi þess að kennsluaðferðir í læsi feli í sér nálgun sem ná til allra þátta móðurmálsins. Því er tal, hlustun, lestur og ritun felld í eina heild undir hatti læsis. Ennfremur eru sértækir þættir móðurmálsins, svo sem hljóðvitund, réttritun, skrift, orðaforði, setningabygging og málfræði einnig tengd inn í ferlið.

Á meðfylgjandi slóð má sjá nýja opna síðu Byrjendalæsis:



 
 
 

Comentarios


logo (heimasidur)_edited.png
Djúpavogsskóli

Varða 6
765 Djúpivogur 

Skólinn er opin frá 

Kl. 07:50  -  15:00
 

cittaslow_text_black_edited.jpg
bottom of page