Hafragrautur í boði fyrir nemendur í Djúpavogsskóla
- Vefstjóri
- 6 days ago
- 1 min read
Frá og með miðvikudeginum 7. maí verður boðið upp á hafragraut á mornganna í Djúpavogsskóla fyrir nemendur sem vilja. Hafragrauturinn er í boði skólans og nemendur þurfa ekki að skrá sig sérstaklega.
Þetta er eitt af atriðum til að efla Djúpavogsskóla í hæglæti, að efla almenna vellíðan nemenda, en er um leið einn af þáttum í innleiðingu ,,Heilsueflandi skóla" sem Djúpavogsskóli hefur núna innleitt frá árinu 2022.
Skólahúsið verður opnað 7:45 og inni í heimilisfræðistofu verður boðið upp á hafragraut fyrir nemendur. Nemendur geta valið að setja kanil, kókosmjöl, döðlur og/eða rúsinur með mjólkinni út á grautin
n.
Nemendur þurfa að vera búin að borða morgungrautinn kl. 8:04 og passa að vera mætt í tíma kl. 8:05, þegar kennslustund hefst.
Njótið vel.

Comments