top of page
Search

Morgungrauturinn vinsæll í Djúpavogsskóla

  • Vefstjóri
  • May 12, 2025
  • 1 min read

Í Djúpavogsskóla bjóðum við upp hafragraut á morgnanna og það hefur verið mjög vinsælt meðal nemenda á öllum stigum.

Hægt er að setja rúsínur, döðlur, kókosmjöl og kanil út á hafragrautinn og einnig hafa nemendur stungið upp á að fá epli og hugsanlega banana til að skera niður í bita út á grautinn.

Það er notaleg stemmning á morgnanna hjá okkur og nemendur hafa verið mjög dugleg að ganga vel um og ganga vel frá eftir sig.

Við biðjum nemendur að halda áfram að passa vel upp á tímann og mæta á réttum tíma þegar hringt er í fyrstu kennslustund.

Þau sem hafa haft knappan tíma er bent á að mæta fyrr í morgungrautinn.



 
 
 

Recent Posts

See All
Skóladagatal skólaársins 2026-2027

Fljótlega uppúr áramótum hefst vinna við að útbúa skóladagatal fyrir komandi skólaár. Ferlið er þónokkur skref þar sem starfsfólk og skólaráð fer vel yfir og kemur með athugasemdir. Að lokum er það sa

 
 
 

Comments


bottom of page