top of page
Search
  • Vefstjóri

Nýja rýmið tekið í notkun

Á mánudaginn var ný viðbygging við grunnskólann tekin formlega í notkun. Með því er tekið mikilvægt og löngu tímabært skref með það að markmiði að bæta vinnuaðstöðu nemenda og kennara.

Viðbyggingin er rúmlega 150 fermetrar og skiptist í fjölnotarými annars vegar og aðstöðu fyrir listgreinar og hönnun og smíði hinsvegar. Einnig var bætt við salernum auk þess sem nýju loftræstikerfi var komið fyrir í nýju byggingunni og hluta af eldra húsnæðinu. Af þessu tilefni var iðnaðarmönnum sem starfað hafa að verkefninu, auk formanns fræðslu- og tómstundanefndar boðið til kaffisamsætis með starfsfólki. Í máli sveitarstjóra og skólastjóra sem tóku til máls við athöfnina kom fram mikil ánægja með allt samstarf meðan á framkæmdunum stóð og var iðnaðarmönnunum þakkað sérstaklega með lófataki. Í máli sveitarstjóra kom einnig fram að nauðsynlegt væri að hefja fljótlega undirbúning að frekari viðbyggingu enda hefur nemendum skólans fjölgað mikið undanfarin ár.


Mikil breyting innan skólans


45 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page