10.bekkur gengur yfir Öxi
- johannareykjalin
- 4 hours ago
- 1 min read
Það voru galvaskir nemendur 10.bekkjar sem ákváðu að afla áheita og ganga yfir Öxi. Markmiðið með göngunni var þríþætt; Í fyrsta lagi að afla fjár fyrir ferðalag sem nemendur kjósa að fara í að loknu námi í grunnskólanum. Í öðru lagi að vekja athygli á því að vinna við heilsársveg yfir Öxi er ekki hafin og í þriðja lagi að hinsvegar beina sjónum að stöðu samgangna milli þéttbýliskjarna í Múlaþingi en allir nemendur í 10.bekk Djúpavogsskóla stefna á nám í Menntaskólanum á Egilsstöðum næsta vetur.
Áhugavert er að árið 2003 gengu nemendur þáverandi 10.bekkjar einnig yfir Öxi í nákvæmlega sama tilgangi og sorglegt að segja frá því að engar breytingar hafa orðið síðan þá.
Skólastjórinn okkar, hún Þorbjörg Sandholt, slóst í hópinn með nemendum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.





Comments