Laus störf við Djúpavogsskóla
Vegna forfalla auglýsir Djúpavogsskóli eftir kennurum til starfa. Um er að ræða starf umsjónarkennara á unglingastigi og kennara til að sinna fjölbreyttri kennslu á öllum stigum.
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 70 nemendur. Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggur mikla áherslu á velferð og vellíðan. Starfsandinn er góður og tækifærin eru mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga. Skólinn er í mikilli þróun með áherslu á samþættingu, úti- og grenndarnám, núvitund, sjálfbærni og teymisvinnu. Við leitum að kennurum sem hafa farsæla kennslureynslu og eru tilbúin að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans.
Starfshlutföll geta verið samkomulag við skólastjóra sem er næsti yfirmaður en störfin eru laus nú þegar.
Vert er að taka fram að nægar íbúðir eru til útleigu á Djúpavogi um þessar mundir og því kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja skipta um umhverfi, koma í hæglætið á Djúpavogi og verða hluti af öflugum starfsmannahóp að sækja um hérna.




Comments