Andarnefja í vanda
- johannareykjalin
- 6 hours ago
- 1 min read
Í morgun fengum við fregnir af andarnefju í vanda í Brandsvík, spottakorn frá skólanum.
Voru því allir nemendur skólans græjaðir út en það gefst ekki oft tækifæri til að sjá hval í slíkri nálægð. Var andarnefjan í þónokkrum vanda þegar okkur bar að garði og sló sporðinum í fjöruborðið og reyndi að losa sig en fjarað hafði undan henni. Það áttu margir erfitt með að horfa upp á hana berjast um en þessi atburður vakti miklar spurningar og vangaveltur hjá nemendum bæði í tengslum við tegundina sjálfa, af hverju hvalir synda upp í fjöru, hvaða möguleikar eru til staðar við björgun á svo stóru dýri og svo framvegis.
Það voru svo hugrakkir heimamenn sem lögðust á eitt að reyna að bjarga dýrinu þegar flæddi að seinnipartinn og tókst þeim að losa hana til þess eins að hún drapst og rak aftur upp í fjöruna.
Þetta var því bæði viðburðar- og lærdómsríkur dagur fyrir nemendur þó að við hefðum auðvitað öll óskað þess að sjá andarnefjuna synda burt í háflóði og sameinast hópnum sínum í Berufirðinum. Eftirfarandi myndir tók Unnur Malmquist og gaf okkur leyfi til að birta en á þeim má sjá að dýrið var orðið þónokkuð sært eftir barninginn í Brandsvík.





Comments