Berjamó í tilefni af degi náttúrunnar
johannareykjalin
1 day ago
1 min read
Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur þann 16.september ár hvert. Við höfum reynt að nýta daginn í útiveru og útikennslu en í ár var veðrið ekki hagstætt á deginum sjálfum svo frestuðum útiverunni aðeins og fórum út í berjamó með allann skólann þann 18.sept.
Það gekk mjög vel að labba upp klifið og þaðan inn í Olnboga að þar sem nemendur fylltu ýmist nestisbox, húfur, hettur eða munna af krækiberjum.
Gengið var sömu leið til baka og komu allir berjabláir og glaðir til baka. Hérna eru nokkrar myndir frá deginum en fleiri myndir voru sendar í föstudagspóstum frá stigunum.






Comments