top of page
Search

Olympíuhlaupið 2026-2027

johannareykjalin
11 minutes ago
1 min read

Í blíðskaparveðri gærdagsins hlupu nemendur af stað í Olympíuhlaup ársins. Það var mikill metnaður hjá nemendum og hlupu þau 402.5km samanlagt! Það skapaðist mikil stemning og mjög margir nemendur fóru í fyrsta sinn 10km og margir 5km. Það er nemendum algjörlega í sjálfvald sett hversu langt (eða hratt) þau fara og er aðal málið að þau hafi gaman, njóti útiverunnar og ekki síður að njóta leiðarinnar í öruggu umhverfi. Kennarar ýmist hlaupa/labba með eða standa á hvatningarstöðvum með brúsa og tilbúin að taka við klæðnaði frá ofhitnuðum hlaupurum :)


Við fengum extra krúttlegt klapplið þetta árið þegar leikskólinn færði sig á milli staða og hvatti nemendur áfram af mikilli einlægni.


Þetta er alltaf mikill hátíðardagur og gleðin algjörlega í fyrirrúmi!


 
 
 

Recent Posts

See All
Tónlistarskóli Djúpavogs

Skráning í tónlistarskólann okkar var frábær en um 30% nemenda eru skráðir og fullir tilhlökkunar að byrja að æfa á hin ýmsu hljóðfæri. Skráning var send á aðstandendur og lauk fyrir helgi. Loka vinna

 
 
 

Comments


bottom of page