top of page
Search

Appelsínugul veðurviðvörun á Vordögum

Vefstjóri
Jun 2, 2025
1 min read

Eins og sennilega hefur ekki farið framhjá neinum er spáð appelsínugulri viðvörun í kortunum á þessum fyrstu dögum vikunnar. Það hefur þau áhrif að áætluð dagskrá á Vordögum Djúpavogsskóla mun breytast og verða aðlöguð að veðrinu.

Eins og allir vita er starfsfólk Djúpavogsskóla frábært og lausnamiðað fólk sem var nú þegar byrjað um helgina að hugsa í lausnum og breyta plönum.

Mánudagurinn í dag, sem er ágætis rigningardagur verður nýttur eins vel og hægt er til að klára ýmis útinámsverkefni, bæði í skólaskóginum á skólalóðinni og í skólagörðunum.

Þriðjudagurinn verður all hressilegur og þá munu verkefna-áætlanir miðast við að vera á staðnum og vera inni.

Þó það sé ekki ánægjuefni fyrir alla að þurfa að breyta skemmtilega skipulaginu sem var komið þá vinna bæði nemendur og starfsfólk saman að því að búa til nýtt skipulag, aðlagað eftir veðri, sem er frábærlega vel gert hjá þeim og sem þau eiga skilið hrós fyrir.




 
 
 

1 Comment


Hosea Matthews
Nov 03

Ég hef alltaf verið íþróttaváðamaður og hafði verið að leita að góðum upplýsingum um íslenskar íþróttalið. Ég var að ræða við vini mína í gærkvöldi þegar einn þeirra minntist á þennan vef. Ég fór að skoða https://znaki.fm/is/teams/ og var smáforvísur í upphafi. Það sem kom mér á óvart var hversu margskipttt úrvalið var. Þær fjölluðu um ýmis konar lið, frá knattspyrnuliðum til handknattleikaraliða. Það sem mér líkaði var að hver pistill var með góðum upplýsingum um sögu liðsins, helstu leikmenn og árangur. Ég las um þrjú lið sem ég þekkti ekki mikið og lærði margt nýtt. Fyrir menn á Iceland sem hafa áhuga á íþróttum finnst mér þessi vefur góður. Ég hef bókamerkt hann og ætla að nota hann reglulega fram…

Like
bottom of page