top of page
Search

Baráttudagur gegn einelti

  • Vefstjóri
  • Nov 11, 2021
  • 1 min read

Mánudaginn 8. nóvember er haldið upp á Baráttudag gegn einelti. Á þessum degi unnu nemendur misjöfn verkefni tengd vináttu en ákveðið var að fresta sameiginlegum viðburði vegna úrhellis-rigningar. Í dag, miðvikudaginn 10.nóvember hittumst við hins vegar allur skólinn á Bjargstúni ásamt öllum nemendum leikskólans Bjarkatúns, mótuðum hjarta með eldri nemendum og yngri nemendur stóðu svo inn í hjartanu sem tákn um samheldni og vináttu. Síðan var sungið lagið Gull og perlur. Kristján Ingimarsson kom svo og tók flottar myndir á dróna og þökkum við honum kærlega fyrir það.



Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna en vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina en viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina Texti: Hjálmar Freysteinsson

 
 
 

Recent Posts

See All
Skóladagatal skólaársins 2026-2027

Fljótlega uppúr áramótum hefst vinna við að útbúa skóladagatal fyrir komandi skólaár. Ferlið er þónokkur skref þar sem starfsfólk og skólaráð fer vel yfir og kemur með athugasemdir. Að lokum er það sa

 
 
 

Comments


bottom of page