top of page
Search

Björgunarsveitin Bára gefur nemendum endurskinsmerki

  • Vefstjóri
  • Dec 12, 2025
  • 1 min read

Nemendur Djúpavogsskóla fengu góða heimsókn á þessum fallega föstudegi, fulltrúar úr Björgunarsveitinni Báru, sem voru komin til að gefa nemendum endurskinsmerki.

Fulltrúarnir Hafdís, Davíð og Kolbrún spjölluðu við nemendur um mikilvægi þess að gæta öryggis í umferðinni, m.a gangandi og hjólandi, að nota hjólahjálma og að nota endurskinsmerki, ekki síst á þessum dimmustu og stystu ,,dögum" ársins sem verður enn meira áberandi þegar enginn er snjórinn.

Hafdís, Davíð og Kolbrún kíktu við til nemenda á öllum stigum og hver nemandi fékk tvö endurskinsmerki að gjöf, sem margir smelltu strax á skólatöskur, yfirhafnir og/eða jafnvel sjálfa sig.

Munum öll að nota endurskinsmerkin á hverjum degi.


 
 
 

Recent Posts

See All
Skóladagatal skólaársins 2026-2027

Fljótlega uppúr áramótum hefst vinna við að útbúa skóladagatal fyrir komandi skólaár. Ferlið er þónokkur skref þar sem starfsfólk og skólaráð fer vel yfir og kemur með athugasemdir. Að lokum er það sa

 
 
 

Comments


bottom of page