top of page
Search

Draumaskólinn okkar

johannareykjalin
11 minutes ago
1 min read

Skólaþróunardagur í Djúpavogsskóla skólaárið 2026-2027

 

Í dag hafa nemendur unnið með atriði úr umbótaáætlun skólans sem snýr að því sem við viljum laga, breyta eða bæta í skólastarfinu.

Umbótaáætlunin var sett upp í 17 spjöld þar sem hugleiðingar um hvernig við viljum sjá þessi atriði þróast í draumaskólann okkar komu fram. Allir tóku svo fyrir 18 spjaldið sem fjallaði um það hvernig við drögum úr einelti og tryggjum að allir fái að vera með. Úr þessum 17 spjöldum völdu nemendur 2-4 spjöld til að vinna með í dag þar sem þeim var skipt þvert á aldur. Nemendur á unglingastigi voru hópstjórar og leiddu vinnu hópsins og báru það hlutverk að tryggja að allir hefðu rödd, tækju þátt og hefðu verkefni í vinnunni.

Kl 12:30 var svo foreldrum og öðrum ættingjum boðið að koma í heimsókn í skólann og sjá vinnuna sem nemendur unnu um morguninn. Það var vel mætt og mikið líf í húsinu.

Niðurstöður dagsins fara í umbótaáætlun skólans sem unnið er með á skólaárinu. Hugmyndirnar eru jafn misjafnar og þær eru margar. Sumar eru auðveldar í framkvæmd meðan aðrar krefjast flóknari úrlausna eða eru jafnvel ómögulegar í augnablikinu eins og gengur og gerist. Hugmyndir nemenda verða til sýnis næstu daga og um að gera ef þið eigið leið hjá að rölta um og skoða.


Hér má sjá nokkrar hugmyndir nemenda og eru allir glaðir með góðan dag.


 
 
 

Comments


bottom of page