Læsir lestrarapp
- johannareykjalin
- 31 minutes ago
- 1 min read
Djúpavogsskóli tók upp í vikunni lestrarskráningar forritið Læsir sem heldur utan um lestur nemanda.
Markmiðið með forritinu er að einfalda skráningu heimalesturs, auka yfirsýn yfir framvindu nemenda og stuðla að bættri lestrarþjálfun. Einnig vonumst við eftir því að smáforritið virki lestrarhvetjandi á nemendur og foreldra þar sem nemendur geta safnað sér "eldum" fyrir hvern lestur og hægt að nýta slíkt í hina ýmsu lestrar-spretti. Forritið heldur einnig utan um þær bækur sem nemendur lesa í rafrænni bókahillu og þar er einnig hægt að sjá hvaða bækur eru vinsælastar hverju sinni.
Mikilvægi heimalesturs er ótvíræður og vonum við að foreldrar taki vel í þetta framtak og skrái barnið sitt inn í appið og nýti þá möguleika sem það hefur upp á að bjóða.





Comments