top of page
Search

Tónlistarskóli Djúpavogs

  • johannareykjalin
  • 6 hours ago
  • 1 min read

Skráning í tónlistarskólann okkar var frábær en um 30% nemenda eru skráðir og fullir tilhlökkunar að byrja að æfa á hin ýmsu hljóðfæri. Skráning var send á aðstandendur og lauk fyrir helgi.


Loka vinna er í gangi þessa vikuna með niðurröðun nemenda í stundatöflu, klára að græja tæknimálin og uppfæra gjaldskrá. Við vonumst til þess að Tónlistarskólinn hefji störf í næstu viku en foreldrar skráðra barna fá nánari upplýsingar í tölvupósti fyrir helgi.


Kennarar eru sem áður segir Jón Hilmar Kárason og Birgir Þórisson. Fer kennsla fram í fjarfundi en á fundi foreldra með þeim félögum kom fram að Jón Hilmar hefur kennt í gegnum fjarfundarbúnað síðan 2015 með góðum árangri. Voru þeir ánægðir að geta bætt Djúpavogsskóla á listann yfir skóla sem þeir þjónusta en nú þegar eru þeir að starfa í tónlistarskólanum á Patreksfirði, í Reykjahlíð og Þórshöfn svo dæmi séu nefnd.



 
 
 

Recent Posts

See All
Skóladagatal skólaársins 2026-2027

Fljótlega uppúr áramótum hefst vinna við að útbúa skóladagatal fyrir komandi skólaár. Ferlið er þónokkur skref þar sem starfsfólk og skólaráð fer vel yfir og kemur með athugasemdir. Að lokum er það sa

 
 
 

Comments


bottom of page