Upplestrarkeppnin
- johannareykjalin
- 2 days ago
- 1 min read
Miðvikudaginn 25.mars fór 7.bekkur til Hafnar í Hornafirði þar sem þrír fulltrúar úr hópnum kepptu um sæti í lokakeppni upplestrarkeppnarinnar.
Að þessu sinni voru það átta nemendur frá Hornafirði sem tóku þátt, þrír frá Djúpavogi og einn frá Hofgarði. Keppnin var mjög flott og keppendurnir okkar stóðu sig virkilega vel.
Þetta árið var enginn frá okkur sem lenti í sæti en við erum engu að síður afskaplega stolt af okkar nemendum.
Á heimleiðinni fengum við óvænta ferðalaga með okkur í rútuna sem vakti mikla lukku hjá nemendum. Svo óheppilega vildi til að rúta með 30 erlendum ferðamönnum fór útaf og festist í Álftafirðinum og þurfti því að ferja fólkið til Djúpavogs. Fengum við fjóra glaða ferðalanga með okkur í bílinn og sungu nemendur meðal annars fyrir þá afmælissönginn á þremur tungumálum.
Nemendur 7.bekkjar voru skólanum til sóma í þessari ferð og þátttaka í upplestrarkeppninni er skemmtilegt og lærdómsríkt uppbrot í skólastarfinu.











Comments