top of page
Search

Þriðja sætið í Stíl!

johannareykjalin
Mar 26
1 min read

Í vetur hafa nemendur tekið þátt í valáfanga sem snérist um þátttöku í STÍL - en Stíll er hönnunarkeppni á vegum Samfés fyrir ungmenni í 8.-10.bekk. Veitt eru verðlaun í nokkrum flokkum, meðal annars fyrir heildarhönnun, hönnunarmöppu, förðun og hár. Þemað í ár var Viktoríutímabilið.


Þær sem tóku þátt í þessu fyrir hönd Djúpavogsskóla þetta skólaárið voru Bergþóra Thea Birgisdóttir, Eyrún Stína Skagalín Guðmundsdóttir, Lilian Zoe Reyes, Antonía Elísabet Ólafsdóttir og Ásdís Elísa Jónsdóttir.

Unnu þær þriðja sætið fyrir heildarhönnun sem var virkilega flottur árangur og erum við stolt af okkur nemendum fyrir hugrekkið og samvinnuna sem þær sýndu í öllu ferlinu! Kennarinn sem stýrði þessu flotta ferli var Helga Björk Arnardóttir en hún er einnig lærð í leikhús- og kvikmyndaförðun og gott að geta nýtt (ofur)krafta okkar starfsfólks á þennan hátt.


 
 
 

Recent Posts

See All
Tónlistarskóli Djúpavogs

Skráning í tónlistarskólann okkar var frábær en um 30% nemenda eru skráðir og fullir tilhlökkunar að byrja að æfa á hin ýmsu hljóðfæri. Skráning var send á aðstandendur og lauk fyrir helgi. Loka vinna

 
 
 

Comments


bottom of page