top of page
Search

Stærðfræði - jóladagatal Flatar

  • Vefstjóri
  • Dec 12, 2025
  • 1 min read

Flötur, samtök stærðfræðikennara, halda úti heimasíðunni ,,Flatarmál".

Þar má finna ýmsar skemmtilegar þrautir, m.a. þetta skemmtilega stærðfræði-jóladagatal sem hangir á vegg skólans, við drykkjarfontinn , fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk.

Við hvetjum ykkur öll til að kíkja á stærðfræðiþraut dagsins þegar þið eigið leið í skólann.


Tilvitnun frá heimasíðu samtakanna, Flatarmál: ,,Flötur eru samtök stærðfræðikennara á öllum skólastigum. Samtökin eru opin öllum stærðfræðikennurum og öðru áhugafólki um stærðfræðinám og -kennslu.

Markmið Flatar er meðal annars; að styðja við þróunarstarf á sviði stærðfræðimenntunar, að efla menntun stærðfræðikennara, að skapa vettvang fyrir umræðu um stærðfræðikennslu og að veita kennurum stuðning við að takast á við ný og breytt viðfangsefni og vinnubrögð.

Með þessum hætti vilja samtökin sameina íslenska stærðfræðikennara á öllum skólastigum í starfi, umræðum og skrifum um stærðfræðimenntun"


 
 
 

Recent Posts

See All
Skóladagatal skólaársins 2026-2027

Fljótlega uppúr áramótum hefst vinna við að útbúa skóladagatal fyrir komandi skólaár. Ferlið er þónokkur skref þar sem starfsfólk og skólaráð fer vel yfir og kemur með athugasemdir. Að lokum er það sa

 
 
 

Comments


bottom of page